Nám annars árs
Á öðru ári þarf sérnámslæknir að standa skil á eftirtöldum atriðum.
MSF (MultiSource Feedback)
Hver sérnámslæknir býr til "multisource feedback" og sendir á 12 aðila, það geta verið sérfræðingar, hjúkrunarfræðingar eða aðrir starfsmenn. Þetta er gert í e-portfolio. Tilgangurinn er að fá þeirra álit á færni viðkomandi sérnámslæknis.
PDP (Personal Development Plan)
Sérnámslæknir setur upp nokkur afmörkuð markmið í sínu eigin e-portfolio. Dæmi um slík verkefni væri til dæmis: Bætt færni í að mænustinga. - ég vil oftar geta mænudeyft/stungið án þess að þurfa aðstoð - ég þarf að stinga oftar og afla mér upplýsinga um bestu aðferðina - á næstu 3 mánuðum ætla ég að reyna að vera staðsettur oftar á skurðstofu þar sem á að mænudeyfa valkvætt, til þess ætla ég að ræða við starfsstjóra - ég ætla að horfa á myndbönd á NYSORA og ræða við Einar Pál um að fá ábendingar um bætta aðferð
Námsþættir annars árs
Airway Management Critical Incidents Day Surgery Intensive Care Medicine Non-theatre Paediatrics including Child Protection Pain Medicine Perioperative Medicine Regional anaesthesia Sedation Transfer Medicine Trauma and Stabilisation Æfingar og blöð eru til grundvallar þessu ásamt loggbók. Almennt viðmið er að hafa eitt blað af hverri tegund (DOPS, ACEX og CBD) en stundum getur eitt eða tvö verið nóg til að sýna fram á að kunnátta og færni sé nægileg fyrir viðkomandi námsþátt.
Þeir húsbundnu námsþættir sem við á
Fossvogur: HNE, bæklunarskurðlækningar. Hringbraut: Gynaecologia, urologia, almenn kirurgia og obstetrik Gjörgæsla er dálítið sér á parti. Þetta er mun viðameiri námsþáttur en nokkur hinna og ætlast er til þess að sérnámslæknar vinni í þessum námsþætti bæði árin.
EDAIC prófið (European Diploma of Anesthesia and Intensive Care)
European Diploma of Anesthesia and Intensive Care prófið gert. á fyrsta ári er æfingaprófið fyrir það gert, það heitir OLA (OnLine Assessment)
Gæðaverkefni
Hver sérnámslæknir velur sér gæðaverkefni til að vinna og kynna í samvinnu og samráði við sérfræðinga deildarinnar.